Fleiri Myndir

Auglýsing

Könnun

sumarið...

Jólastuð og afmæli eftir 4 daga...

20. nóvember 2009 klukkan 00:46

Úff, ég og mamma erum ekki í lagi.

Ég er búin að hengja upp jólaseríu í gluggann og byrjuð á jólahreingerningunni og mamma er búin að setja öll ljós í gluggana heima og á handriðið á útitröppunum. Hef ekki hlustað á annað en jólalög síðustu vikuna. Það er ekki hægt að segja annað en við erum jólabörn, hehe.

Annað í fréttum ég er að fara til Texas að dansa sem gesta aðaldansari í Hnotubrjótnum í uppfærslu einhvers stórs skóla þar. Fæ skulum segja mjög vel borgað svo það er þess viðrið. Þó ég þurfi að dansa tvo duetta með strák sem er í companýinu með mér heldur þarf ég líka að dansa sóló, það sem heitir koda sem er alltaf eftir að aðaldansararnir dansa sólóana sína þá dansa þeir saman við létta tónlist og svo finale og svo þarf ég að gera fullt af auka leik einnig. Allt saman með æfingum fyrir Hnotubrjótinn hjá okku þar sem ég er í tveimur ólíkum verkum... Held það verði mjög ánægjulegt að komast í jólafrí fyrst ég þarf að æfa allt þetta í þakkargjarðarhátíðar fríinu mínu. En ég er viss um að þetta verði rosalega gaman og gaman að fá aðalhlutverkið. Ætla að taka upp á æfingu einhvern tíman (þarf hvort sem er að gera það til að sjá) og ég ætla að setja það á netið (facebook og youtube) Svo þeir sem vilja geta séð það þar.

Annað þá er ég búin að vera mjög veik en er öll að koma til núna og er bara með smá kvef og leiðinlegan djúpan hósta, en alls ekki eins slöpp og ég var fyrir 3 dögum. Var svaka ánægð þegar ég komst að því að ég væri búin að missa svona 2 kg en svo fékk ég matarlystina aftur og búmm.. þau voru komin jafn fljótt og þau fóru, skrambans. En jæja svona er það, mér finnst matur bara allt of góður til að gefa hann upp, haha.

En ég er að fara í næstu viku og kaupa slatta jólaskraut og skreyta um afmælið mitt, það verður afmælisgjöfin mín :D hlakka ekkert smá mikið til svo eru það jólagjafir sem ég þarf að senda heim og ætla að kaupa mér sætan kjól á "black friday" sem er stærsta útsala EVER, þarf að vakna kl 5 um morguninn til að fá eitthvað blehh.

Þangað til næst

   Fjóla "A"

 

Myndir að neðan eru frá tískusýningu við vorum þáttakendur í :) mjög gaman.

 

Pensacola

02. nóvember 2009 klukkan 08:06

Ég trúi því næstum ekki að það sé nokkur sem ennþá skoðar þessa síðu...!

En ef það er einhver þarna úti sem enn heldur fast við og vonar að ég uppfæri einhvern tímann, mér finnst eins og ég verði að skrifa eitthvað.

Ég er núna búin að vera í Bandaríkjunum í um 3 mánuði. Tíminn líður sannarlega hratt, hef alltaf mikið að gera. Auðvitað er þetta erfitt, en hvað er ekki erfitt? Kynnast nýju fólki. Læra nýja siði. Læra á nýtt umhverfi. Læra í Háskólanum er allt öðruvísi en framhaldsskólinn, auðvitað hehe. Dansa og reyna að halda sama viðhorfi og ég er ákveðin að gefast ekki upp. Ég veit að fólk hefur verið áhyggjufullt um heilsu mína og andlegt viðhorf. En ég vil segja að það er allt í lagi með mig. Þó ég sé ein þá fékk ég góða æfingu í Svíþjóð svo þetta er ekki alslæmt. Og jafnvel þó þetta sé lengsti tími sem ég hef veri í burtu þá verður það að gerast einhvern tímann að ég fari að heimann. Auðvitað er það ekki beint venjulegt að fara eins snemma og ég gerði og fráskilið frá Svíþjóð þar sem það var ekki svo erfitt að hoppa upp í vél og heimsækja fjölskylduna þá er ég viss um að ég þroskist vel við þetta tækifæri og fái að upplifa margt skemmtilegt. Eins og í gær fékk ég að upplifa Hrekkjavöku sem var stórskemmtilegt, svo fæ ég að sjá hvernig allt er á Þakkargjörðar hátiðinni og fæ að sjá hvernig brjálæðingarnir í Pensacola skreyta fyrir jólin og áramótin.

Fjölskyldan sem ég er hjá er mjög  fín og mjög góð við mig. Ég er viss um að þeim líki við mig og ég held áfram að haga mér vel, haha :) Þeir sem hafa séð mín frekar niðurdregnu facebook skrif skulu ekki hafa áhyggjur. Allir hafa sína upp og niður daga og þetta er búinn að vera strembinn mánuður og næstu tveir verða ennþá erfiðari svo ég vona að allir geti sent mér góða strauma og óskir um velgengni því það væri vel þegið.

Svo verður ennþá skemmtilegra að sjá alla í apríl þegar ég hef verið svona lengi í burtu, ekki satt? hehe. Vona að allir hafi það fínt og passið að frjósa ekki í hel á klakanum þarna heima...

Góða nótt   "FIGHTING"

  Fjóla "A"

PB

   

 

Er að vinna að því

05. september 2009 klukkan 20:48
Hæj hæj
Allt gengur vel hérna úti.
Ég er að taka myndir núna út um allt svo ég geti sett þær upp og geri það vonandi núna í kvöld, ætla á smá rúnt og taka myndir og skella þeim svo upp.
Skrifa þá meira
Peace out!

 Fjóla

Sumarið að taka enda?

23. júlí 2009 klukkan 14:47
Svo, er sumarið að taka enda eða bara rétt að byrja?

Þetta er búið að vera ágætt sumar, það sem af því er liðið að minnsta kosti. Búin að vera að vinna í bókasafninu á ágætum vöktum, búin að fara í nálastungur sem er bara vont ef einhver hefur verið að velta því fyrir sér, en það á að hjálpa með beinhimuna og ég er reiðubúin að reyna allt.
Búin að reyna að hreyfa mig en hef alls ekki verið eins dugleg og ég ætti að vera, en er að fara að hrista sjálfa mig ægilega og taka mig til. Ef einhver vill koma og ganga eða hjóla með mér, let me know. ;)

Annars er ekki mikið búið að gerast. Þetta er bara buið að vera ágætt og það hefur ekkert gerst sem er þess virði að skrifa um, þessi síða er nú líka einungis ætluð ballettævintýrum og fyrst ég er ekki að dansa núna þá er ekki bloggað.

Er enn að deyja yfir suður-kóreu og því miður fyrir mömmu  mína lítur þetta ekki út fyrir að vera bara eitthvað´tímabil sem ég er að fara í gegnum. Korea is here to stay...
Fannst bara leiðinlegast að þeir bjóða einungis upp á japönsku og kínversku kennslu hérna í HÍ, annars hefði ég frekar viljað taka kórensku en sænsku og ensku.

En hvað um það, núðlurnar frá svíþjóð hafa komið að góðum notum við að slökkva löngunina í kórenskan mat svona af og til. Það verður að nægja þangað til ég kemst í asíumarkaði og út á kórenska veitingastaði.

Hef enn ekki fengið svar frá HÍ um umsókn mína í sænsku BA í fjarnámi, ég verð líklega að fara upp í HÍ og bara tilkynna þeim það að ég ÆTLI að taka þetta nám hjá þeim, hvort sem þeir vilja eðaur ei.
Og það var ekki meira að þessu sinni.

"FIGHTING"
       (ég þarf á einu stóru fighting að halda núna, "A")

Fjóla



4minute

Sommar och sol...

29. maí 2009 klukkan 23:04
Jæja...

Þá fer þetta allt að koma að endi... Ein vika eftir og svo bara stúdentabrjálæði eftir.
Það er nú ekki mikið sem á eftir að gerast næstu viku svo ég ákvað að blogg smá núna fyrir þessar fáu sálir sem kíkja annað til á þessa síðu og ég vil bara segja að ég er mjög þakklát fyrir það og fyrir áhugann á að fylgjast með mér þessi síðastliðin þrjú ár sem ég hef verið hér.
Annars hefur vikan bara verið róleg.
Í þar síðustu viku voru sýningarnar okkar og það gekk fram úr öllum óskum, artist directorinn (Donald K) var mjög ánægður með framistöðu allara og hin verkin voru líka tekin vel. Svo var ég núna á fimmtudaginn s.l að horfa á sýninguna hjá módern krökkunum og þau stóðu sig með prýði og stóðu upp úr hinum atriðunum.

Mamma og amma eru að koma nú, amma í smá sólarferð, en svo þegar hún fer aftur þá kemur pabbi og ætlar að vera á stúdentnum. Ég hlakka svo til, er komin með kjólinn (mjög sérstakann kjól sem ég segi frá þegar ég hef myndir af mér í honum, því hann hefur stóra merkingu fyrir mig) en vantar enn skó... Það var nú meira vesenið en ég er nú vön að finna eitthvað.

Fór í kórensku búðina að kaupa smá drykk og pínku nammi og kona þekkti mig aftur eftir að við höfðum stutt spjallað um eina vöruna sem ég var að kaupa um daginn og þá hafði ég kvatt og þakkað fyrir mig á kórensku. Og núna mundu hún eftir mér og bæði heilsaði, talaði (hvað kanína á töskunni minni var sæt og hvað veðrið væri gott og hvort mér væri heitt) á kórensku og kvaddi... Og ég talaði og svaraði og allt á kórensku. Var geðveikt stolt af mér að skilja og geta svarað. Skildi ekki alveg allt en náði svona samanhenginu í þessu hjá henni og hún skildi mig :D Allt erfiðið að skila árángri, en eftir þessa för í búðina fann ég strax þránna að læra meira og æfa mig. Er glöð að ég á frekar létt með að ná tungumálum og ég leikið mér svona með þetta.
Svo er ég að pæla að taka ensku eða sænsku í Háskólanum á næsta ári í fjarnámi, er örugglega gaman :)

En þetta fær að duga í bili.

"Yourabu, Fighting"
 
  Fóla-shii

Í sól og sumaryl

06. maí 2009 klukkan 19:57
Jess it's me, shocking I know...

Var að klára síðasta heimalærdóminn frá konunglega sænska ballettskólanum og ákvað að fagna með að skrifa eitt lítið blogg.

Núna er allt á fullu með sýningar hjá okkur, frumsýingin er ákkurat eftr viku frá og með í dag (miðvikudag) og kennararnir eru að deyja úr stressi, eins og vanalega og allir nemendurnir eru að fá dagleg break down, eins og vanalega. Svo maður getur svosem sagt að allt gangi sinn vanagang. Já, þetta er ekki létt líf sem maður hefur valið en ég myndi ekki vilja skipta því fyrir neitt annað heldur.
Er að hellast yfir mig að núna eru þetta þriggja ára ævintýri að ljúka og við tekur nýtt. Það er eins og í gær að ég ákvað með fjölskyldu minni að flyja út til Svíþjóðar eftir að hafa fengið inn í skólann. Svo núna er ég búin að fá minn hvítan koll og verð bráðum hent á pallbílinn og segji mína síðustu kveðju við skólann.
Þetta hava sannarlega verið spennandi ár, full að hlátri, gleði, sorg, spennu, einmanarleika, vináttu, ást og bara allt í allt yndislegt. Hef kynnst svo yndislegu fólki og lært nýtt tungumál og kynnst nýjum hefðum.
Síðustu helgi var svo (mösspatagningen) húfu-uppsettningin, veit ekki alveg hvernig ég á að útskýra það, en þá safnast allir sem eru að útskrifast á þessum sérstaka dag og marsera saman syngjandi og öskrandi niður í garð og þar talar svo skólastjórinn og svo er talið niður og allir syngja og setja á sig kollana. Þetta eru svo flottar húfur, gæti ekki verið ánægðari, hver og ein er sérhönnuð eftir þínum smekk og hvenig þú hefur pantað hana, og ég pantaði mína fyrir 4 mánuðum. Hehe, þeir eru mjög skipulagðir svíarnir.
Svo er kvöldmatur og partý þann 8 júní, sem er haldinn af okkur og við bjóðum inn fólki sem kauptir miða og við erum búin að leigja sal og svo er þema, og okkar þema er SIRKÚS. úllala, svo það verður mikið um popp, bómullarnammi (cotton candy, candy floss) og trúðumí því partýi. Síðan en ekki síst er sjálf útskriftin þann 11 júní. Bara svona til að útskýra hvernig þetta gengur fyrir sig. En ég ætla ekki að útskýra allt, því sumt af því skil ég ekki einu sinni sjálf.

En þannig lýta næst komandi dagar út hjá mér, svo er ég komin með sumarvinnu svo það léttir á hjartanu. Að geta unnið sér inn smá vasapening. Og alltaf er að hitna hér í veðri og það er nú ekki amarlegt, alls ekki.

En ég læt þetta duga í dag, ef þið viljið sjá myndir frá mér þá finnst allt þetta nýja á facebook, það er svo erfitt að vera að setja myndir upp á alls konar síður svo ég set þær bara upp þar frá og með nú.
Ef þú ert ekki vinur minn, addaðu mér þá og útskýrðu hvernig þú þekkir mig, en ég adda bara fólki sem ég þekki svo ef ekki þá því miður.

Takk í bili

 Fjóla Svíafari

p.s. jam, er enn að kafna í kóreudóti og er byrjuð að taka því meira fyrir alvar að læra kórensku, bara smá funfact fyrir alla þá sem eru alls ekkert að pæla í því ;)
student
student

NDT2

19. janúar 2009 klukkan 17:20
Jæja, þá er rútínan byrjuð aftur, þessi elsku rútína.

En það góða við okkar rútínu er að jafnvel þá við séum alltaf i sömu tímunum þá erum við allaveganna að gera eitthvað nýtt í hverri viku. Jólin voru alveg frábær og ég vil óska öllum gleilegt nýtt ár :) Vona að það hafi byrjað vel hjá öllum og allir séu reiðubúnir í nýy og framandi ævintýra ár :D

Ég eyddi mínum jólum í æfingar á næstum hverjum morgni og lá þar á meðal í algjöru leti með fjölskyldunni og vinum, og ég hefði ekki viljað hafa það á neinn annan veg. Ég kynntist líka nýju fólki og það er ávallt gaman. Fékk að dansa með henni Bryndísi sem er nýbúin að opna ballettskóla í Reykjanesbæ og ég mæli eindregið með því, leyfið börnunum að hreyfa sig, hehe. Og svo tók ég tíma hjá Maríu Gísladóttur og það var reynsla og gerði mér gott. Hún er alveg yndisleg manneskja og gaf mér mörg góð ráð og tips, enda okkar fremsta ballerína á Íslandi.

Annars er bara allt gott að frétta, er að taka myndir frá jólunum og áramótunum til að setja á netið meðal annars, og frá nýja kjólnum mínum sem ég hannaði og mamma saumaði og nokkrum ballettmyndum, svo endilega kíkja (MYNDIR- vinstra megin)

Er svo að fara í helgarferð til Hollands núna n.k helgi með nokkrum krökkum og við ætlum að dansa smá og hafa gaman. Brjóta aðeins rútínuna, hehe. Það verður gaman að fara til Hollands, enda hef ég aldrei verið þar og ég og vinur minn ætlum pottþétt að fara á Café og fá okkur special brownies *wink wink* (smá grín)

Annað en það er ekkert sérstakt að ske annað en að nú erum við byrjuð að æfa aftur sýninguna okkar (projekt vinnuna) því við erum að fara að sýna hana í Västerås núna 3 feb og aftur í Gautaborg í mars og svo í Örebro í apríl. Einnig erum við byrjuð að æfa fyrir vorsýninguna, sem verður þarna mitt á milli þessa og þar er ég að æfa sóló (sólóinn sem ég sýndi á Íslandi) og við erum að setja upp þriðja aktinn í Coppelíu.

That's all for now
  "A"
 Fjóla "HWAITING"

ballett

주문

17. nóvember 2008 klukkan 19:54
Vá, það er búið að vera svo mikið að gera hjá mér.
Erum búin með frumsýninguna á verkefnavinnunni okkar, danssýning gerð og með 3 árs nemum skólans, og allir eru mjög ánægðir og við erum að fá þvílík lof, og núna er það orðið þannig að við erum að fara næsta á á ferðina með þessa sýningu okkar, förum til Västerås i febrúar og til Gautaborg og kannski Lindköping og einn annan stað.

Svo fór ég á Science Fiction Convention með Noah og Hrafni og það var ekkert smá mikið stuð. Var klædd í Lolita kjól sem mamma hjálpaði mér með (nota hann í sýningunni) og það kom ekkert smá vel út og núna vil ég nota hann alltaf, hehe, skil afhverju stelpur eru að elska þetta tísku. Ef þú veist ekki hvað Lolita er, gúgglaðu því þá, en þetta er ein af mörgum tískufyrirbærum í Japan (sérstaklega í Osaka). Er búin að setja upp myndir af því undir MYNDIR. svo endilega fara og skoða ;)

Síðan var Ósk hérna hjá mér í nokkra daga, og það var ekkert smá mikið stuð, takk kærlega fyrir yndislegu tímana kæra vinkona, það var frábært að hafa þig og geta sýnt þér kringum borgina. Elsa verður að koma næst :D

Ég er næstum búin með Sænskuna í skólanum, er búin í skriflega lokaprófinu (tók 5 tíma) og á bara eftir munnlega hlutann, svo er ég búin :D Annars er allt bara ennþá brjálað og ég hef ekki verið að koma heim úr skólanum fyrr en um hálf 9 á hverju kvöldi svo ég vona að fólk skilji að ég bloggi eki mikið, eg venjulega hendi bara einhverju ofan í mig og er svo sofnuð.
En er búin að setja inn einn bol undir BOLIR og á eftir að setja upp nokkra í viðbót.

Hef eki teiknað í 4 mánuði, án djóks. Ég veit ekki hvað er að mér. Er alltof upptekin, er ekki einu sinni að doodla í bóklegu tímunum, er oftast að berjast við að halda mér vakandi. En núna verð ég að fara og panta tíma hjá tannlækni og fylla ú nokkur eyðublöð fyrir Audition í Hollandi, núna fer að koma að þessu, en það er bara gaman. Ætla að vera duglegri að blogga núna þegar það fer að róast hjá mér, en á samt enn eftir 2 sýningar og 2 danspróf. Svo eki búast við miklu í einu.

"A"
    Fjóla Sweet-Lolita



































"UGA-UGA"

21. september 2008 klukkan 16:36
"A"

Ætla ekki að biðjast afsökunnar að hafa ekki bloggað, ég hef bara ekki haft tíma og ætti í rauninni ekkia ð vera að skrifa núna heldur að einbeita mér að næsta prófi.
En ég veti að það er kannski einhver þarna sem les þetta og flestir eru örugglega hættir núna fyrst ég er ekki búin að láta heyra frá mér í svona 2 mánuði eða eitthvað.

Aurora

En núna erum við komin aftur frá Íslandi, ég hef aldrei  verið eins þreytt. Þetta er í fyrsta sinn sem ég fer heim og hvíli mig ekki neitt, ég fór þreyttari aftur út til Svíþjóðar en þegar ég fór þaðan.
En allt heppnaðist mjög vel, kennarar og nemendur voru mjög ánægðir og þá langar strax tilbaka. Og ég hef frétt að allir sem sáu sýningarnar fannst gaman og ég hef bara heyrt góða hluti.
Ég vil þakka öllum þeim sem komu á sýningarnar, sem sýndu áhuga og stuðning og til allra styrktaraðilana og sérstaklega Reykjanesbæ fyrir að gera þetta að raunveruleika. Svo vil ég þakka mömmu og pabba sérstaklega og án þeirra hefðu allir dáið úr hungri og mamma, þau eru enn að tala um góða matinn og góða fólkið á Borgarvegi 8 :) Takk fyrir vikuna, ég skemmti mér konunglega þó þetta hafi verið mjög þreytandi einnig.

Er byrjuð að hanna mína eigin boli, hehe, á eftir að taka mynd af þeim og mun síðan setja upp hérna, ég ætla að selja þá og það er hægt að panta hjá mér, þeir eru síðan allir merktir merkinu mínu : Ice Mai

Annars er bara svo mikið að gera hjá mér í skólanum og það er ekki mikið að segja frá, er bara að læra og dansa á fullu og vinna að verkefna vinnu (sem er jólasýningin okkar) svo ég hef ekki mikið um að skrifa, en ef það gerist eitthvað sérstakt þá mund ég skrifa um það ;)
Eigið góðan og notalegan sunnudag, ég verð að fara að ná í þvottinn og byrja að elda og halda svo áfram að lesa.
Anyo
  Fjóla

p.s. Ætla að enda með smá myndum af mér frá sýningunni (þær eru frekar óskýrar), set síðan upp nokkrar á myndasíðuna mína þegar ég er búin að safna að mér nokkrum því ég tók engar sjálf.

ég

ég

ég

ég

ég

Núna er það komið...

29. maí 2008 klukkan 16:50
NÚNA er sumarið komið...

Ég skrifa þetta núna sitjandi í gluggakistunni minni með galopinn glugga (bara því ég veit hvað mamma alveg eeeelskar tilhugsunina, haha, ég er svo evil) klukkan að nálgast 7 og ennþá 24 gráður og sól úti. Var í sólbaði í einn og hálfann tíma á áðan, vildi ekki fara inn en þurfti því maður má víst ekki vera allur brenndur á síðustu sýningunni. Jess, síðasta sýningin og þá fer ég að verða glöð. Svo fer mamma að koma og þá verður það bara sólbað inn og út allan daginn í heila viku. Verð að verða brún í sumar, nenni ekki að vera eins og næpa lengur, haha.

Síðasta sýningin er á stað sem heitir Västerås og liggur um klst utan fyrir Stokkhólm, svo við þurfum að fara með rútu þangað og aftur tilbaka. Fyrst þegar stundaskráin fyrir þennan dag kom upp, guð minn góður. Ég hefði þurft að vakna kl 5 um morguninn og væri ekki komin aftur heim fyrr en um 1 um nóttina, brjálæði! Þau hafa greinilega átað sig á hve asnalegt þetta var fyrir bara eina sýningu þyrftum við ekki svona ógeðslega langan tíma. Þegar búin að gera þetta programm 150 sinnum. Svo núna þarf eg ekki að vakna fyrr en 7 og verð komin aftur á milli hálf 11- 11 :D miklu betra, hehe. Bara sind að þurfa að eyða þessum degi innilokaður í einhverju leikhúsi og svitna í staðin fyrir að vera úti og ja, svitna reyndar, en aðeins skemmtilegra.

Það er líka ömurlegt að mæta í skólann á morgnanna, allir svo dauðir í framan, alveg á síðasta dropanum. Svo eftir langa daga (já, þegar þið eruð flest í sumarfríi er ég ennþá næstum alla daga til 6 í skólanum) þegar allir eru á leiðinni úr skólanum (eins hratt og þreyttir fætur orka, enginn nennir að vera eina sekúndu lengur í skólanum :'D) þá er þetta eins og það sé búið að hleypa út uppvakningunum (ZOMBIE ATTACK) haha, ótrúlegt

En annars er ekki mikið að ske ákkurat núna, var að koma úr picnic með flokknum mínum og kenaranum okkar, ekkert smá kósý :D svo á laugardaginn er ég að fara í hádegismat með vinkonu minni og svo er samkoma í skólanum mínum um kvöldið og kvöldmatur. Svo ég er ótrúlega vond við mömmu á fyrsta deginum sem hún kemur. Svona er ég.
nenni ekki að eeeeeeeeeeeelda (eða þrífa en það er annað mál)
Ætla að halda áfram að horfa á nýju þráhyggjuna mína.... Kóreanska leikjaþætti wúhúúú :D
Enda með mynd af fallegu drengjunum í DBSK (Dong Bang Shin Ki) (einnig undir nafninu TVXQ-Kína og tohoshinki-Japan)

DBSK


Fjóla   ~HWAITING~

Atburðarteljari

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...